Jöklajeppar Vatnajökli

TENGT EFNI:

Ferðast um Austurland

Jöklajeppar - Glacier jeeps
Glacier Tours

Hafnarbraut 15
780 Hornafjörður, Iceland
Tel: +(354) 478-1000
+(354) 894-3133

glacierjeeps@simnet.is


Jöklajeppar hf á Hornafirði voru stofnaðir árið 1994.

Í þættinum Hvernig sem viðrar fjallaði 3. þáttur um suðausturland.
Fólk sem á leið um Suð-Austur héröð, veitir því oft athygli að gífurlegur jökull gnæfir yfir svæðinu. Flestir gera sér grein fyrir því að þetta muni vera Vatnajökull, stærstur jökla í Evrópu. Eins verða flestir snortnir af töfrum hans og fegurð og þeim konunglega svip sem hann setur á svæðið. Hinsvegar eru það fæstir sem gera eitthvað í því að nálgast og upplifa þessa fegurð þó vissulega fari þeim fjölgandi sem vilja snerta á jöklinum. Hægðarleikur er að verða sér út um vélsleðaferð um jökulinn og í góðu veðri er það upplifun sem engin orð fá lýst. Vatnajökull Tours bjóða uppá vélsleða- og jeppaferðir um jökulinn. Hægt er að bóka slíkar ferðir og fá nánari upplýsingar í síma 478-1000 og á slóðinni www.glacierjeeps.is. Bjarni Skarphéðinn fer fyrir vöskum hópi manna og kvenna á jöklinum og er að öðrum ólöstuðum Clint Eastwood jökulsins.

Athugið að 14 daga skilaréttur samkvæmt 8. grein laga 46/2000 um fjarsölusamninga á ekki við hér. Sala þar sem neytandi hefur sérpantað vöru eða hún hefur verið sniðin á annan hátt að persónulegum þörfum hans, t.d með því að panta ákveðnar dagsetningar, er undanþegin rétti til að falla
frá samningi samkvæmt 10. grein sömu laga.