FERÐ:
I - Ferðir 2010
Vélsleðaferð
frá Jöklaseli:
Ekið 4 km. inn á Vatnajökul
Tími: 1 klukkustund
Þjónusta til staðar allann daginn.
EUR 90.00,- á mann m.v. 2 farþega saman á
sleða
FERÐ:
II
Vélsleðaferð
frá Jöklaseli:
Brókarbotnstindur.
Lágmarksfjöldi 2 farþegar.
Tími: 2 klst.
Verð: EUR 200.00,- á mann m.v. 2 farþega saman á sleða.
FERÐ:
III
Jeppaferð
frá þjóðvegi 1 upp í Jöklasel
og vélsleðaferð inn á jökul og til
baka.
Brottför frá afleggjara F985 alla daga frá
maí - okt. kl. 9.30 og kl. 14.00
Lágmarksfjöldi 2 farþegar.
Tími ferðar: 3 klukkustundir, þar af klukkustund
á vélsleða.
Aðrar tímasetningar eftir samkomulagi og þá
þarf að panta.
Verð: EUR 100.00,- á mann m.v. 2 farþega saman
á sleða
FERÐ:
IV
Jeppaferð
frá þjóðvegi 1 og inn á Vatnajökul
og til baka.
Brottför frá afleggjara F985 alla daga. frá
maí - okt. kl. 9.30 og kl. 14.00
Lágmarksfjöldi 2 farþegar.
Tími: 3 1/2 klst.
Aðrar tímasetningar eftir samkomulagi og þá
þarf að panta.
Verð:
EUR 100.00,-
Aukagjald
fyrir að verða einn á sleða eru EUR 50.00,-
Hlífðarföt og hjálmur í vélsleðaferðum
innifalin í verði.

FERÐ:
V
Jeppa-/gönguskíðaferð
á Vatnajökli
Þetta er ferð sem nánast allir geta tekið
þátt í. Sumir hafa stigið á skíði
í fyrsta sinn á æfinni í þessari
ferð.
Í ferðinni á Vatnajökul byrjum við
á að aka upp að Jöklaseli. Þaðan
ökum við í sérútbúnum bifreiðum
Jöklajeppa 9 km leið um snæviþakinn Vatnajökul,
að Brókarbotnstindi, þaðan sem stórbrotið
útsýni er niður í Kálfafellsdal,
yfir á Þverártindsegg og Öræfajökul,
að ógleymdum víðáttum sjálfs
Vatnajökuls.
Jepparnir skilja okkur eftir við Brókarbotnstind
og við göngum til baka á gönguskíðum
um hvítar fannbreiður Vatnajökuls. Þegar
við komum aftur í Jöklasel er hægt að
fá sér hressingu á hæsta veitingastað
landsins áður en við ökum niður á
láglendið.
Þá er líka hægt að fá svefnpokagistingu
í Jöklaseli hvort heldur í upphafi eða
endi ferðar. Nánari upplýsingar er hægt
að fá
hér.
 |
Að
sjálfsögðu verður að taka tillit
til veðurs ef fara á í skíðaferð.
Þú þarft að taka með þér
hlý útivistarföt. Á Vatnajökli
getur verið frost um mitt sumar. Góðu fréttirnar
eru þær að á Vatnajökli getur
líka snjóað um mitt sumar og við getum
fengið fyrirtaks skíðaaðstæður. |
| Árstími:
|
Vor/sumar |
| Útvegum: |
Gönguskíði
+ skó og stafi |
| Lágmark: |
4
þáttakendur |
| Tími: |
5-7 klst.
|
| Verð:
|
kr.
25.000,- * |
*Verðið
miðast við að við tökum og skilum þátttakendum
á bílastæði við afleggjara F985.
Boðið
er upp á ferðir í Grímsvötn,
Kverfjöll og Snæfell til Egilsstaða, einnig á
Breiðamerkurjökul, Öræfajökul og að
Humarkló.
Jöklajeppar skipuleggja einnig skíðaferðir
og gönguferðir þar sem jepparnir eru notaðir
til að komast aá auðveldan hátt á
staði þaðan sem gengið er eða skíðað
með leiðsögn til byggða.
Jöklasel
Við rætur Vatnajökuls er veitingaskálinn
Jöklasel þar eru veitingar
í boði.
Þar er m.a. boðið upp á hlaðborð
úti og inni fyrir hópa. (Þarf að panta
með fyrirvara). Hádegisborð alla daga frá
1. júní til 10. september frá kl. 11.15
til 14.00.
Súpa, salatbar og brauð.
Verð
Kr. 2.200,-.
Vinsamlega pantið tímanlega.
Hlaðborð I
Súpa, salat, rækjur, síld, pastaréttur,
reyktur/grafin lax, pönnusteykt jöklableikja, ofnbakaður
þorskur, gradíneraðar kartöflur, brauð
og tilheyrandi sósur.
Verð:
Inni í Jöklaseli ....Kr. 3.400
Snjóborð á Jökli Kr. 5.900
Hlaðborð II
Sama og hlaðborð I + humar og meira lagt í skreytingar
og útlit.
Verð:
Inni í Jöklaseli ....Kr. 4.100,-
Snjóborð á jökli Kr. 7.100,-
Kaffihlaðborð
Rjómaterta, súkkulaðikaka, kleinur, formkaka,
brauðterta, smákökur.
Verð: Kr. 1.700,-